Ávinningur persónuverndar fyrir þig
Persónuupplýsingar og vinnsla persónuupplýsinga er mikilvægur þáttur í starfsemi hvaða fyrirtækis sem er, sama hver stærð þess er. Hér eru fimm atriði sem staðfesta mikilvægi persónuverndar og hvers vegna það er mikilvægt fyrir fyrirtæki þitt að fara að persónuverndarlögum:
1. Grundvallarréttindi sem vernduð eru með lögum.
Persónuvernd er vernduð í mannréttindasáttmála Evrópu sem fjallar um grundvallarréttindi. Persónuverndarrétturinn er réttur sem getur haft áhrif á önnur grundvallarréttindi, s.s. tjáningarfrelsi, hugsanafrelsi eða fundarfrelsi.
Frá því í maí 2018 þegar persónuverndarreglugerðin (GDPR) tók gildi er fyrirtækjum innan EES-svæðisins skylt að tryggja að persónuupplýsingar einstaklinga njóti fullnægjandi verndar með því að fylgja þeim verklagsreglum sem krafist er í reglugerðinni. Ef ekki er farið að reglunum getur það leitt til þungra sekta, allt að 20 milljóna evra eða 4% af ársveltu fyrirtækisins.
2. Hún eykur traust.
Einstaklingar eru í auknum mæli meðvitaðir um rétt sinn til friðhelgi einkalífs og rétt til persónuverndar.
Röng meðferð persónuupplýsinga getur með skjótum hætti skaðað orðstír fyrirtækis og grafið undan trausti til þess. Það getur tekið mörg ár að endurbyggja traustið. Þegar fyrirtæki sýnir, með skýrum og traustum verklagsreglum, að það virði persónuverndarreglugerðina, styrkir það traust viðskiptavina.
3. Gerðu persónuvernd að hluta af ímynd fyrirtækisins.
Fyrirtæki sem er þekkt bæði fyrir góða þjónustu og ábyrga meðferð persónuupplýsinga er líklegra til að halda viðskiptavinum sínum.
4. Hún kemur í veg fyrir svik og netglæpi.
Innleiðing öflugra öryggis- og verndarráðstafana verndar ekki aðeins persónuupplýsingar viðskiptavinanna, heldur einnig gögn fyrirtækisins þíns. Þannig má forðast alvarleg vandamál sem gætu skaðað orðspor fyrirtækisins eða leitt til leka trúnaðargagna.
5. Hún sparar þér tíma og peninga.
Að takast á við afleiðingar persónuverndarbrota, eins og tölvuárása, getur verið kostnaðarsamt og tímafrekt. Hafa þarf samband við þá einstaklinga sem verða fyrir áhrifum og hugsanlega greiða sektir eða bæta tjón þeirra er málið varðar.
Til að draga úr hættu á að lenda í þeirri aðstöðu er lykilatriði að virða persónuverndarreglugerðina.